Baráttan um Ísland

Baráttan um Ísland er hlaðvarp á vegum þingflokks Miðflokksins. Þáttastjórnendur verða þingmenn og þeir munu einnig fá til sín gesti eftir atvikum. 

Miðflokkurinn stendur vörð um fullveldi Íslands og styður ekki aðild Íslands að ESB, né aðildarviðræður við ESB. Þingmenn og gestir munu færa rök fyrir því í þáttum hlaðvarpsins. 

Episodes

Jul 17, 2026

1 hr 3 min

Sigríður Á. Andersen og Birgir Ármannsson fara um víðan völl í þessum fjórða þætti hlaðvarpsins en snerta m.a. á lögfræðilegum þáttum Evrópusambandsins.

Jul 17, 2026

1 hr 3 min

Jun 22, 2026

1 hr 11 min

Í þessum þætti má finna varnaðarorð um það að leggja mikla áherslu á upptöku evrunnar en Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Bergþór Ólason, þingmenn Miðflokksins, fóru m.a. yfir kosti og galla upptöku evrunnar, og  gjaldmiðlaskýrsluna sem kom út fyrir stuttu síðan. 

Jun 22, 2026

1 hr 11 min

Jun 9, 2026

54 min

Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, og Eiríkur S. Svavarsson, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Miðflokksins, fara yfir grunnatriði Evrópusambandsins. Ef þú vilt vita muninn á varanlegum undanþágum og sérlausnum, hvað það þýðir að Ísland verði nettógreiðandi í ESB eða hvort um yfir höfuð ,,sæti við borðið" sé að ræða, þá er þetta þátturinn fyrir þig! 

Jun 9, 2026

54 min

May 31, 2026

57 min

Fyrsti þáttur hlaðvarpsins Baráttan um Ísland er nú kominn í loftið! Hlaðvarpið er rekið af þingmönnum Miðflokksins en næstu vikur og mánuði munu þeir sérstaklega taka fyrir ESB aðildarviðræðurnar.Hvernig koma það til að þann 29. ágúst n.k. munu Íslendingar kjósa um það hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður, fara yfir það.

May 31, 2026

57 min

Copyright 2026 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125